Pilates bolti
5.900 kr
Léttur pilatesbolti sem eykur fjölbreytni og gleði á æfingum. Þessi fjölnota bolti er meðfærilegur og fyrirferðarlítill; hann eykur álag og dýpt í æfingunum og gerir pílates- og Barre-tímana kraftmeiri og áhrifaríkari.
Boltinn er afhentur óuppblásinn en honum fylgir rör sem gerir það fljótlegt og auðvelt að blása hann upp. Hann er því fullkominn félagi í ferðalagið eða til þess að geyma heima á milli æfinga.
Helstu eiginleikar:
-
Fjölhæfni: Býður upp á aukna mótstöðu og fjölbreytni í æfingum.
-
Einfaldleiki: Auðvelt að blása upp og tæma eftir þörfum.
-
Meðfærilegur: Passar fullkomlega í ræktartöskuna eða handfarangurinn.